top of page

Staff and board

Þórdís Erla Ólafsdóttir
Forstöðumaður 

Verkefnastjóri VisitVík 

Ráðgjafi hjá SASS 

Samstarfsaðili Kötlu Jarðvangs 

FORSTÖÐUMAÐUR

 

Ábyrgð- og stjórnun.

  • Forstöðumaður Kötluseturs sér um daglegan rekstur setursins.

  • Forstöðumaður ber ábyrgð á fjárreiðum Kötluseturs og fasteignum.

  • Forstöðumaður Kötluseturs gerir leigusamninga við þá sem nýta aðstöðu í húsakynnum setursins og sér um að reglum um umgengni sé fylgt.

  • Forstöðumaður Kötluseturs gætir fyllsta trúnaðar um þau einkamál og sérmál fyrirtækja sem hann kann að fá vitneskju um í starfi.
     

Helstu verkefni.

  • Forstöðumaður vinnur að stefnumótun fyrir Kötlusetur í samvinnu við stjórn.

  • Forstöðumaður Kötluseturs hefur yfirumsjón með upplýsingamiðstöð ferðamála í Mýrdalshreppi og sér til þess að svarað sé öllum fyrirspurnum um þjónustu og aðstöðu á svæðinu frá einstaklingum, fyrirtækjum, ferðaskrifstofum o.fl.

  • Forstöðumaur Kötluseturs  vinnur að eflingu samstarf ferðaþjónustuaðila í sveitarfélaginu, og því að fá ferðaþjónustuaðila til samstarfs um rekstur setursins.

  • Forstöðumaður Kötluseturs vinnur að eflingu tengsla milli Kötluseturs og Kötlu- Jarðvangs.

  • Forstöðumaður Kötluseturs sér í samstarfi við stjórn um að sækja um styrki til rekstarins til opinberra aðila og einnig annarra aðila sem styrkja menningartengda starfsemi og nýsköpun á sviði menningar- og ferðamála.

  • Forstöðumaur Kötluseturs vinnur með sérstökum verkefnum eins og Regnbogahátíðinni o.fl. og að eflingu menningarstarfsemi í Mýrdalshreppi.

  • Forstöðumaður vinnur að og skipuleggur ýmiskonar sýningarhald í bæði á vegum Kötluseturs og annarra sem nýta vilja húsakynni setursins í þeim tilgangi.

  • Forstöðumaður Kötluseturs vinnur að kynningu á svæðinu og þeirri starfsemi sem hér er, og tekur á móti gestum sem kunna að vilja kynna sér aðstæður á svæðinu.

  • Forstöðumaður Kötluseturs vinnur að eflingu samstarfs bæði við menntastofnarnir og aðrar opinberar stofnanir á sviði menningar og náttúruvísinda.

  • Forstöðumaður Kötluseturs skilar árlega til stjórnar skýrslu um störf sín.

  • Forstöðumaður Kötlurseturs er verkefnastjóri VisitVík ferðaþjónustuklasans.
     

Annað

  • Forstöðumaður Kötluseturs annast að öðru leyti þau verkefni sem stjórn kann að fela honum enda tengist þau verksviði hans og rúmist innan vinnutímaramma.

  • Forstöðumaður hefur starfsaðstöðu í Brydebúð.

    Úr erindisbréfi.

bottom of page